Svona í tilefni af því að ég var að slafra í mig einum sveittum börger og frönskum&kokteil með,
að þá varð ég að sýna ykkur þessar girnilegu myndir af síðu sem ég var að byrja followa á Instagram
nutrition_planet
Sniðugt til að peppa upp vatnið
Fallegt!
OMG ég elska fjólublátt þannig að þetta er pottþétt guðdómlegt!
Sniðugt í barna-afmælin? ;-)
Ég myndi örugglega ekki tíma að borða ef ég myndi gera svona fínt
Nei heyrðu, getur ekki klikkað! Hnetusmjör, banani og.. múslí?
GEÐVEIKT!
Afhverju er ekki oftar boðið upp á svona bakka í afmælis/fermingar/köku/illt í mallann- boðunum?
Þúst - hafið þá bara súkkulaði með til að dýfa ;-)
Svo bara poppar svo mikið upp að hafa litríkt nasl á boðstólum.
Það er svo fyndið með svona ávaxta/grænmetis bakka -
alltaf sagt " oohh þú alltaf í hollustunni " - eða "borðar þú aldrei nammi?" - EÐA "róóóleg það má nú leyfa sér stundum"
Svo er þetta lagt á borðið og.. hvað er nánast fyrst að klárast?? ;-)
Það hefur allavega slegið í gegn hingað til hjá okkur vinkonunum,
en með smá ostum og dökku súkkulaði að sjálfsögðu!
ENJOY.
x
1 comment :
Mmmm.. já takk!
Post a Comment