16.4.14

Um daginn horfði ég á heimildarmyndina "I want to look like that guy" - myndin fjallar um þennan avarage Joe, sem einsog við flest, langaði að koma sér í form - og einmitt líta út einsog "that guy" í auglýsingunum. Hann hafði keypt sér hin og þessi efni sem áttu að hjálpa honum að komast á þann stað. Vöðvastæltur, skorin og flottur. En ekkert af því virtist vera virka, sama hvað hann prufaði. Hm :) Hann setti sig í samband við fitness keppanda og þjálfara sem á sína eigin stöð.Setti sér markmið og á aðeins 6 mánuðum náði hann ótrúlegum breytingum og það er alveg magnað að sjá hvað er hægt að gera með líkamann og móta hann, með virkilega mikilli erfiðisvinnu auðvitað og ekki allaf dans á rósum, en á svona stuttum tíma!

Hér er  trailerinn um myndina -


Hér er svo viðtal við hann eftir þessa tilraun sína og hann segir örstutt frá ferlinu. 




Mig langaði bara að sýna ykkur þetta svona í ljósi þess að framundan er páskamótið í fitness & vaxtarrækt og oftar en ekki hafa hrunið ófá ljót og leiðinleg komment um keppendur á netinu eftir þessar keppnir, og fólk að gera GRÍN af þessu. Ég hef aldrei fattað það? Ég fatta alveg húmorinn hjá Tinnu & Tótu sem eru með fyndna þætti á BRAVÓ sem gera grín af ýktum öfgum í þessu sporti - en við skulum ekki gleyma að þetta er þeirra sport og fólk er að leggja hrikalega mikið á sig til þess að ná árangri. Fólk sem hefur t.d alla sína tíð stundað íþróttir og haft eitthvað að stefna að, svo hættir það og byrjar að stunda ræktina, auðvitað er þetta keppnis fólk sem vill ennþá hafa eitthvað að stefna að. Hvort sem það er að fara á svið í bikiní eða vera fit í friði ;-) Afhverju kemur okkur það við hvað fólk tekur sér fyrir hendur og hefur áhuga á?

Svo er eitt sem mér finnst alveg merkilegt. Ég veit um helling af fólki sem hefur svoleiðis drullað yfir þessar keppnir og fólkið í þeim, sagt þetta vera óheilbrigt og þar fram eftir götunum, og gert grín af þeim/þessu með því að pósta mynd af sér í ræktinni og gera öll þessi hastögg, þið vitið...
 "Vá, fór út að hjóla í 10mín, fit fyrir sumarið" #ifbb #bringfit #bikini #kálímatinn

.. orðið frekar þreytt djók :) 

... en svo ákveður vinkonan/frænkan/vinurinn.. að taka þátt? ÞÁ er þetta ALLT öðruvísi. Því þú veist að manneskjan er að gera þetta á hreilbrigðan máta, því þú þekkir hana. Þú VEIST hvað hún er að leggja mikið á sig. Lækar myndir af henni úr ræktinni og skrifar hvetjandi komment. Já það þarf oft að koma aðeins nær til að skilja hlutina :)

Ég tek ofan af þeim sem ná að halda þetta "kött" matarræði út í 12 vikur - ég veit ekki hvor ég gæti það.  Gætir þú það? Bara svona uppá fönnið? Það er hægara sagt en gert, svona í daglegu lífi þar sem það eru freistingar allstaðar og þú þarft virkilega að standa með sjálfum þér, sama hvað öðrum mætti finnast um það að þú fáir þér ekki köku í þessu afmælisboði og fáir á þig allskonar komment " þú ert nú ekki neitt neitt þú mátt alveg við smá köku!" Til þess þarf mikinn aga og mikla sjálfstjórn. 



Pössum hvað við segjum og oft er ágætt að halda sinni skoðun bara út af fyrir sig. Ég hef t.d enga þörf fyrir að úthúða fólk sem stundar íþrótt eða sinnir áhugamáli sem ég er ekki endilega hlynnt - ég bara pæli þá ekkert í því og hef þá skoðun út af fyrir mig, svo einfalt er það. 

Ég gæti skrifað mikið mikið meira varðandi þetta, 
en ætla að láta þetta duga í bili og endilega horfið á myndina ;-) 

x


7.4.14

FLÖFFUNIN heldur  áfram krakkar
 - tvær útgáfur af hinu vinsæla flöffi sem fer sívaxandi í vinsældum ;-) 



Hindberja flöffið með banana+kiwi & hálft prótein stykki frá EAS skorið niður.


Bláberja með gænu epli, ananas, kiwi & trönuberjum

Það er bara svo skemmtilegt að borða fallegan og girnilegan mat! Sammála?

xx

4.4.14

*

Hindberja-flöff

Virkar sem fínasta millimál með ávöxtum út á..





Ég var á hraðferð og var því ekki að fara borða þetta strax, heldur setti ég inn í ísskáp til að eiga á eftir. Annars hefði ég sett girnilegri mynd með einhverju út á - en hægt er að setja það sem manni lystir út á flöffið! Banana, jarðaber, bláber, kókosflögur, (serjos, já ég gerði það ;-) 
Bara það sem ykkur langar í!


Í þessu er:

1 bolli frosin hindber
1/2 bolli möndlumjólk
1 skeið Vanillu prótein
eilítið minna en c.a 1/2 teskeið Xanthan Gum 

*Xanthan Gum fékk ég í Heilsuhúsinu í Kef, 
en það er einnig til frá NOW í heilsuhorninu í Nettó.
Það er til að gera þetta "flöffað".

Skellið þessu í skálina og hrærið þar til þetta flöffast og verður þykkt! 
MJÖG EINFALT.

Næst ætla ég að prufa með Casein próteini, en það er þykkara og ætti því að flöffast meira. 
Nota þá ef til vill bláber eða eitthvað annað. 

YUM! :)


3.4.14


Apríl mánuður byrjar svona hrikalega vel !



Mikið er GOTT að  mæta 06:30 og taka morgunbrennslu og smá kvið í leiðinni! Whoop
Og það er eitthvað sem ég hef ekki gert áður- eða getað, enda hef ég nýtt allar mínar mínútur í að sofa út þegar ég þarf ekki að vakna 04:00 í vinnu.


Beint heim í þessa S N I L L D!

Prótein pönnsa með hálfum banana+hálfri peru.




Þegar ég tek mig til get ég verið ANSI skipulögð. Ekkert að því endrum & eins.



 G I R N Ó



Tölvan hefur verið minn besti vinur - 
nú fer lokaverkefnið að fara af stað í næstu viku og nóg annað að gera með því :) 

Í hádeginu verður svo farið í Sporthúsið í Kóp og tekin æfing með vinkonu! 

Svo þarf ég að fara mana mig upp í að mæta í WorldClass, langar svo að prufa áður en skólinn klárast, en ég hef frían aðgang á meðan námi stendur. Þoli bara ekki að mæta eitthvert ein og vita ekkert hvar neitt er. Þarf í það fyrsta að finna stöðina sem ég vil fara í og svo leiðina til að keyra þangað.... lol

1.4.14


Ég ætla nýta apríl mánuð til hins allra ýtrasta! 

Do it to ;-) 



31.3.14

Helgin mín... 



Byrjaði á þessum ótrúlega góða graut með kanil, eplum og goji berum áður en ég skellti mér í ræktina og Foam Flex. Hrikalega góð byrjun á helginni. 




Tók mig til í annað en æfingafötin. Prufaði Nude varalit í MAC sem ég er frekar skotin í. 
Ákvað samt að geyma það örlítið að kaupa hann. Einn varó á 5þúsund krónur, eðlilegt?!


Tokyo Sushi to go! 
Hrikalega gott. Hér er ég með Surf'n turf. Nommm...


Laugardeginum og Sunnudeginum var varið í skólann..
Bandvefslosun og Liðleikaþjálfun



Prótein pönnsa í hádeginu - delissjös.




Helena með réttu tökin á kellu ;-) Ofsalega góð teygja!


Þessi harði ógeðslegi bolti er nýi "besti" vinur minn.


Það var svo gott veður á sunnudeginum og við kláruðum örlítið fyrr svo ég dreif mig út í smá göngu. 
Mikið sem það er gott að fá sér fersk loft. Maður gerir alltof lítið af því að labba úti.


Bjó mér til þennan gómsæta "rétt" - þetta var bara eins og að borða nammi!



Cleansing Te & After eight - gott fyrir svefninn ;-) 

Þetta var mín helgi í grófum dráttum - ekkert overwhelmingly(er það orð?) spennó en góð var hún!

xx






27.3.14


Hafragrautur, eitt það besta sem ég fæ á morgnanna..


Ég fæ mér hafragraut á hverjum morgni fyrir vinnu, en svo er misjafnt hvað ég fæ mér á frídögum en þá er fínt að breyta til. Finnst svo nauðsynlegt að fá mér eitthvað sem fyllir magann vel því ég hef ekki mikil tök á því að borða almennilega fyrr en um 8-9 leitið í fyrsta lagi. Ég reyni þó að hafa eitthvað meðferðis eða fá mér einn Froosh til dæmis, því ég er samt oft komin með garnagaul kl. 7 ! (borða yfirleitt 04:30)

í þetta skiptið prufaði ég að setja Goji ber og banana. 
Hef ekki alltaf fýlað Goji berin en þau eru að færast ofar á listann.

Elska hvað það er hægt að gera grautinn góðan á marga vegu. 
Einu sinni var ég gjörsamlega húkkt á því að setja Rísmjólk og bláber út á, nommm!

Áfram hafró!