Ólína Ýr Björnsdóttir er 22 ára Keflavíkurmær sem er oftar en ekki með á förðunarburstana á lofti &
langaði mig að forvitnast aðeins um þessa hæfileika hennar og deila með ykkur.
Ólína hefur alltaf haft rosalega mikinn áhuga á öllu sem tengist förðun. Hún var frekar óákveðin hvað hana langaði að læra en ákvað svo að slá til og skella sér í Snyrtiakademíuna haustið 2012, en þaðan útskrifaðist hún með Dimploma um jólin.
" Mér fannst skólinn æðislegur og kennararnir voru gull! Kynntist öllum stelpunum rosalega vel og var þetta eitt af því skemmtilegasta sem að ég hef gert. Mæli eindregið með þessum skóla. Hann er fyrir alla sem vilja læra um förðun og líka fyrir þær sem kunna ekki neitt eins og ég var." - Hún segist alls ekki alltaf hafa verið með förðunar touchið & varla kunnað að setja á sig Eyliner... - vá æfingin skapar greinilega meistarann!
Í skólanum er kennd allskonar förðun, en þar má helst nefna brúðarförðun, sjónvapsförðun, fantasy, drag, svarthvíta, litadýrð og aðeins Special Effects förðun, en henni finnst skemmtilegast að gera tísku - & Special Effects eins og sést kannski á like síðunni hennar, en linkur á hana er hér neðar.
.. ætli ég geti gert svona, kannski ár síðan ég lærði að setja á mig eyliner!
Kærastinn hennar hefur í ófá skiptin verið notaður sem tilraunadýr.
Mér finnst þetta svo raunverulegt og ég botna eiginlega ekkert í þessu!
Ólína hefur tekið þátt í allskona verkefnum fyrir ýmsa aðila, en þar má nefna helst tískusýningar, tónlistarmyndbönd, myndatökur & auglýsingar. Hún setur stefnuna alltaf á að læra eitthvað meira og fylgist því vel með öllu því nýjasta sem tengist förðun.
"Eftir
skólann var ég og er ennþá mjög dugleg að skoða farðanir á netinu og fylgjast
með öllu því nýjasta í förðun. Ég útbjó förðunarherbergi heima hjá mér og hefur
það hjálpað mér svakalega mikið. Það skiptir öllu máli að hafa góða aðstöðu. Ég
hef verið að taka að mér farðanir síðan að ég útskrifaðist í desember 2012
fyrir flest öll tilefni. "
Ólínu finnst þetta Quote eiga vel við.. enda getum við allt sem við ætlum okkur!
Beneath the makeup and behind the
smile I am just a girl who wishes for the world - Marilyn Monroe
Hún var fengin til að vera andlit NoName skólans í Kópavogi.
Þessi mynd eftir Sillu Páls prýddi blaðsíður bókarinnar "Förðun, skref fyrir skref"
og var einnig notuð á postera sem auglýsing fyrir NN makeup school.
Klár , myndarleg & heilbrigð stúlkan!
Mæli algjörlega með því að smella á linkinn fyrir neðan, splæsa í Like á síðuna hennar,
en hún er rosalega virk og dugleg í að setja inn ný look og mæla með allskonar sniðugu stöffi,
og það er virkilega gaman að skoða aftur í tímann og sjá hversu mikið henni fer fram! :)
LIKE síðan hennar
Takk kærlega fyrir þetta Ólína, alltaf jafn gaman að fylgjast með þér!










No comments :
Post a Comment