L Ý S I
Þorskalýsi, krakkalýsi, D-vítamín bætt lýsi í
töfluformi....... Hvað er best?
Er
einhver munur á föstu eða fljótandi formi?
Ég hef.. já, bara aldrei spáð í því áður. Það
var ekki fyrr en ég byrjaði að læra um það í skólanum. Ég hafði ýmindaði mér að töflurnar væru fyrir
þá sem koma lýsinu ekki niður, sem jú er gott og blessað, en mér finnst lýsi í
alvöru talað alveg ágætt & get tekið það fljótandi– svo, ég hætti strax að
taka þessar töflur af & til og tek núna 1 skeið á dag af Þorskalýsi eða
þetta nýja með Sítrónubragðinu sem mér finnst reyndar bara gott! Talað hefur verið um að langbest sé að taka krakkalýsið en dæmi hver fyrir sig.
Afhverju?
Nú ætla ég ekki að fara útskýra allt ferlið,
en leyndarmálið er, næst þegar þú ferð út í búð, taktu upp flöskuna & svo
dollu með töflum í , kíktu aftan á þær og sjáðu mun gildanna EPA og DHA og
berðu saman tölurnar. Þið sjáið muninn! EPA og DHA eu þær Omega 3 Fitusýrur sem
nýtast okkur og við sjáum því hvað
virknin er mun betri í fljótandi Lýsinu.
Ég hvet því alla sem mögulega koma fljótandi
Lýsinu niður að taka það. Fitusýran er svo viðkvæm að erfitt er að koma henni
fyrir í töfluform.
Lýsi
styrkir ónæmiskerfið
bætir geðheilsu
mikilvægt
fyrir þroska heila & taugafruma
rannsóknir
hafa sýnt að dagleg inntaka á lýsi dregur úr notkun gigtarlyfja
rannsóknir hafa tengt fækkun þunglyndistilfella við
hóflega lýsisneyslu
eykur
lífslíkur og lífsgæði kransæðasjúklinga
Lýsi
viðheldur heilbrigðri nýrnastarfsemi hjá eldra fólki
..svo vil ég meina að lýsi sé gott fyrir hárvöxt! ;-)
ásamt fleiri góðu kostum, þá eru ofangreindir aðeins dæmi.
Fyrir áhugasama:
HÉR má nálgast áhugaverða grein um lýsi og svör við spurningum tengt virkni þess.
1 comment :
Ég öfunda fólk svo mikið að geta tekið lýsi svona "dry." Ég bara get það engan veginn og fæ bara klýgju að hugsa út í það. En þá er bara að taka töflurnar!
Er ofur ánægð með byrjunina á blogginu btw! :)
Post a Comment